Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Valmynd
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Valmynd
Hraðlar

Hraðlar

Á LANDSBYGGÐINNI

Hér má finna yfirlit yfir hraðla utan höfuðborgarasvæðisins. Ef þú vilt skoða alla hraðla, þá finnur þú þá hér.

Slipptakan
Slipptakan
Slipptakan

Slipptakan er vettvangur fyrir frumkvöðla sem vilja taka næsta skref með verkefnið sitt þar sem þátttakendur fá rými til að skerpa og þróa hugmynd sín áfram. Slipptakan felur í sér þrjár vinnustofur, leiðsögn við þróun viðskiptalíkana og áætlana, ásamt faglegri endurgjöf frá sérfræðingum og jafningjum. Verkefnin sem taka þátt fá einnig persónulega ráðgjöf og tengsl við öflugt frumkvöðlasamfélag. Aðeins þau sem ljúka Slipptökunni geta haldið áfram í Hlunni árslöngu prógrami Drift EA.

💬 Ráðgjöf & fræðsla
📍 Vinnustofur
💬 Mentora fundir
image-0
Startup Landið
Startup Landið
Startup Landið

Startup Landið er nýsköpunarhraðall fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni. Að skipulagningu standa samtök landshluta hringinn í kringum landið en markiðið er að skapa vettvang fyrir frumkvöðla og áhugafólk um nýsköpun sem vill láta að sér kveða. Startup Landið hefst í september 2025 og valin verða teymi til þáttöku sem munu frá fræðslu og ráðgjöf til þess að þróa hugmynd sína áfram í stuðningsumhverfi. Vegleg verðlaun eru fyrir bestu hugmyndirnar.

💬 Ráðgjöf & fræðsla
🏆 Verðlaun fyrir bestu hugmyndina
✉️ info@startuplandid.is🗓️ Umsóknarfrestur: 31. ágúst 2025🗓️ 18. sep -30. okt 2025🔗 Sækja um
Startup Tourism
Startup Tourism
Startup Tourism

Startup Tourism er fimm vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu alls staðar af landinu. Markmið hraðalsins er að hvetja til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum, ýta undir tæknivæðingu og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring. Allt að tíu fyrirtæki eru valin til þátttöku. Hraðallinn er á vegum KLAK - Icelandic Startups og Íslenska ferðaklasans.

🥾 Ferðaþjónusta
💬 Ráðgjöf & fræðsla
📍 Vinnustofur
image-0
image-1
additional-images+2
📍 Gróska og á netinu✉️ klak@klak.is⌛️ 5 vikna hraðall🚀 10 fyrirtæki📆 Umsóknarfrestur: 13 okt. 2024🔗 Sækja um🔗 Póstlisti